SÓLDÍS 20 – Einbreitt Heilsurúm (80 – 140cm)

159.900kr.257.600kr.

Sóldís 20 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Sóldís er lagskipt svampdýna unnin úr hágæða kaldsvampi og hentar mjög vel þeim sem þurfa aukin stuðning, eru viðkvæmir fyrir hreyfingu eða vilja stífa dýnu.

Sóldís heilsudýnurnar hafa verið mjög vinsælar fyrir þá sem þjást af verkjum í baki og herðum.

Sóldís 20 er einnig fáanleg sem tvíbreitt rúm sem má skoða hér.

Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.

Vörumerki

VNR: soldis20-heilsurum-1

Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland sem hefur framleitt íslensk heilsurúm í yfir 70 ár. Lystadún-Snæland og Vogue leggja mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og því er allur svampur sem notaður er í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.

Stífleiki

Hægt er að velja um mjúka eða stífa dýnu. 

Dýnuver

Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Ólíkt flestum innfluttum dýnum er rennilás á dýnuverunum okkar. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.

Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.

Stuðningur og þægindi

Sóldís 20 samanstendur af 20cm lagskiptum svampkjarna. Samsetningin er mismunandi eftir því hvort dýnan á að vera mjúk eða millistíf.

Í mýkri útgáfunni er neðra lagið úr 15cm af millimjúkum LuxComfort kaldsvampi og efra lagið úr 5cm af Supersoft kaldsvampi.

Í stífari útgáfunni er neðra lagið úr 15cm af stífum RigiFoam kaldsvampi og efra lagið úr 5cm af Supersoft kaldsvampi.

Kantar

Kantarnir á Sóldís dýnunum eru stífir og góðir. Því er engin hætta á að maður renni út á gólf þegar maður sest á rúmkantinn.

Rúmbotn

Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.

Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja um ótal mismunandi liti og áklæði (t.d. leðurlíki, tau, velúr ofl.).

Afhendingartími

Lystadún-Snæland heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.

Framleiðsluland

Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.

Vottanir

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Finnur þú ekki þína stærð?

Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.

Rammaðu inn nýja rúmið þitt með fallegum rúmgafli