Vörumerki | |
---|---|
Vörutegund |
Heilsudýnur |
VNR:
hafdis-26-heilsurum
431.200kr. – 609.400kr. Original price was: 431.200kr. – 609.400kr..344.960kr. – 487.520kr.Current price is: 344.960kr. – 487.520kr..
Hafdís 26 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Hafdís 26 er fimmsvæðaskipt latexdýna unnin úr hágæða latexblöndu með auka þægindalagi úr fyrsta flokks kaldsvampi.
Latexdýnur henta mjög vel þeim sem vilja mikinn stuðning og aðlögun við líkamann, góða dempun og/eða fólk með ofnæmi.
Hafdís 26 er einnig fáanleg sem einbreitt rúm sem má skoða hér.
Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.
Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland sem hefur framleitt íslensk heilsurúm í yfir 70 ár. Lystadún-Snæland og Vogue leggja mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og því er allur svampur sem notaður er í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.
Munurinn á Hafdís 20 og Hafdís 26 er auka þægindalagið.
Þægindalagið er efsta lagið á dýnunni sem gefur dýnunni þá yfirborðsmýkt sem þarf til að taka við lögun líkamans. Mannslíkaminn er eins misjafn og við erum mörg og því er ekki ein lausn sem hentar öllum.
Hafdís 20 er ekki með viðbættu þægindalagi því latex kjarninn er steyptur á þann hátt að hann mótar sitt eigið þægindalag.
En hvað ef þér finnst millistífa dýnan aðeins of stíf undir axlirnar, eða mjúka dýnan ekki alveg nógu mjúk undir mjaðmirnar? Þá bætum við öðru 5cm þægindalagi af svampi ofan á Hafdís 20.
Hafdís 26 er þar af leiðandi með viðbættu þægindalagi úr 5cm kaldsvampi sem fínstillir yfirborðsmýktina akkúrat eins og þú vilt hafa hana.
Einn annar kostur við það að velja dýnu með auka þægindalagi er sá að þá verður það aðal slitflöturinn á dýnunni. Þegar efsta lagið verður farið að mýkjast um of þá er einfalt mál að skipta því út fyrir nýtt þægindalag frá okkur. Þannig er búið að lengja líftíma dýnunnar þinnar til muna.
Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu.
Einnig er hægt að hafa annan helminginn mjúkan og hinn millistífan.
Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.
Ólíkt flestum innfluttum dýnum er rennilás á dýnuverunum okkar. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.
Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.
Í Hafdís 26 er fimm svæða 20cm þykkur latex kjarni úr vandaðri latexblöndu frá Artilat í Hollandi. Hægt er að hafa latex kjarnann mjúkan eða millistífan.
Latex kjarninn er fimmsvæðaskiptur, sem þýðir það að hann gefur betur eftir undir öxlum og herðum á sama tíma og hann styður þétt undir mjóbakið.
Að auki er latex kjarninn með steyptum loftrásum sem veita frábæra öndun og bæta loftflæðið.
Hægt er að velja um tvær tegundir af 5cm kaldsvampi í efsta lag dýnunnar. Hvor svampur hefur sína eiginleika sem breyta yfirborðsmýktinni.
Latex kjarninn er steyptur í mót sem hefur þau áhrif að kantarnir á dýnunni verða náttúrulega sterkbyggðir. Þetta gerir það að verkum að svefnflöturinn stækkar og að engin hætta er á að maður renni út á gólf þegar sest er á rúmkantinn.
Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.
Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja um ótal mismunandi liti og áklæði (t.d. leðurlíki, tau, velúr ofl.).
Lystadún-Snæland heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.
Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.
5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.
Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.
Allur latex sem Vogue notar í Lystadún-Snæland Hafdís og Mayan Green heilsudýnurnar sínar er fenginn frá stærsta og virtasta latexframleiðanda í Evrópu, Artilat. Latex frá Artilat er allur vottaður með Oeko-Tex Standard 100 og Rainforest Alliance umhverfisvottunum, og er meðlimur í Forest Stewardship Council (FSC-C135311) samtökunum.
Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.
Rammaðu inn nýja rúmið þitt með fallegum rúmgafli
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.
SÉRSMÍÐI Á DÝNU