-20%
Vörumerki |
---|
VNR:
uci-pillowise-jr-master
18.500kr. Original price was: 18.500kr..14.800kr.Current price is: 14.800kr..
Af hverju ættu börnin okkar að sofa á einhverju öðru en því allra besta?
Heilbrigður svefn í réttri svefnstöðu eykur andlega og líkamlega vellíðan og bætir frammistöðu í daglegu lífi. Koddinn er fáanlegur í 3 mismunandi stærðum (þykktum).
Kjarni: 100% hágæða hollenskur þrýstijöfnunarsvampur
Áklæði: 100% Tencel sem framleitt er úr náttúrulegum fíber þráðum úr trjám. Það veitir áklæðinu silkimjúka áferð
Pillowise Junior frá United Comfort Industries er fyrsti heilsukoddinn fyrir börn sem er sérsniðinn að stærð þeirra og líkama. Einstök hönnun koddans dregur úr þrýsting og álagi á efstu 7 hryggjarliðunum sem eru oft undir miklu álagi vegna aukinnar notkunar á snjallsímum og spjaldtölvum. Stuðningurinn sem heilsukoddinn veitir getur hjálpað til við að leiðrétta hinn svokallaða „Tech Neck“ sem fylgir oft mikilli notkun slíkra tækja.
Heilbrigður svefn í réttri svefnstöðu eykur andlega og líkamlega vellíðan og bætir frammistöðu í daglegu lífi. Koddinn er fáanlegur í 3 mismunandi stærðum (þykktum).
Til þess að finna fullkominn kodda fyrir barnið þitt þarf að smella á þennan hlekk HÉR og setja inn hæð, þyngd, aldur og kyn. Út frá þeim upplýsingum reiknar Pillowise fyrir þig nákvæmlega hvaða koddi hentar þínu barni best. Einnig er hægt að koma í verslun okkar í Ármúla 44 og fá aðstoð sérfræðinga.
Til að vöðvarnir slaki sem mest á og til að hvílast sem best er nauðsynlegt að sofa á kodda sem er sérsniðinn þínum þörfum. Einföld og áhrifarík mælitækni frá Pillowise gerir þér kleift að finna fullkominn kodda fyrir barnið þitt.
Það er mikilvægt að koddinn sé ekki of þykkur og ekki of þunnur. Viðeigandi koddi, í réttri hæð, mun aðlaga sig að útlínum hálsins. Þar að auki er koddinn þægilega mjúkur og veitir frábæran stuðning.
Pillowise koddarnir eru hannaðir í verksmiðju Pillowise í Hollandi þar sem einungis er notast við besta fáanlega hráefnið á markaðnum hverju sinni. Með Pillowise koddunum fylgir 5 ára ábyrgð til að gulltryggja góðan svefn nótt eftir nótt.
Hægt er að fjarlægja áklæðið og þvo við 40°C
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.