Uppselt
Vörumerki |
---|
VNR:
VERI-WIZZ-ELEC-N-131
328.000kr.
Við kynnum nýja hægindastólinn Wizz, núna með rafmagni!!
Endurhannaður í Danmörku og byggður á grunni Wizar, hægindastólsins sem allir Íslendingar elska. Hann er einstaklega fallegur, endingargóður en umfram allt, þægilegur. Núna er stóllinn einnig fáanlegur með rafmagni og er því auðveldara en nokkru sinni fyrr að koma í sér vel fyrir.
Wizz hægindastólarnir eru hannaðir í Danmörku af fyrirtækinu Strictly Design. Vogue hefur selt Wizz og forvera hans Wizar núna í áraraðir og hafa viðskiptavinir okkar verið einstaklega ánægðir með stólana.
Þess vegna erum við óhrædd við að segja að Wizz sé hægindastóllinn sem Íslendingar elska.
Wizz fæst nú með rafmagni og er því auðveldara en nokkru sinni fyrr að koma sér vel fyrir. Takkaborð á stólnum gerir þeir kleyft að lyfta fótskemlinum upp og halla bakinu aftur og með einu handtaki er hægt að stilla höfuðpúðann sérstaklega.
Wizz tau hægindastólarnir eru bólstraðir með áklæði sem heitir Aquaclean Nordic. Áklæðið, sem er úr pólýester blöndu, er einstaklega slitsterkt og samkvæmt framleiðanda eld- og vatnshelt. Það litast einnig seint upp í sól og því ætti stóllinn þinn að halda fegurð sinni um ókomna tíð.
Aquaclean Nordic áklæðið er afar þægilegt að þrífa með því einfaldlega að strjúka yfir stólinn með rökum klút og hár loða illa við það. Því eru Wizz stólarnir sérstaklega gæludýravænir.
Breidd – 74cm
Dýpt – 50cm
Dýpt sætis – 50cm
Hæð – 114cm
Hæð upp í sæti – 52cm
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.