WIZZ – Hægindastóll (tau – rauður 131)

249.000kr.

Wizz – Hægindastóllinn sem Íslendingar elska.

Fallegur, nettur og umfram allt þægilegur.

Out of stock

Vörumerki

Vörutegund

Hægindastólar

VNR: VERI-WIZZ-N-131

Flottur frá öllum sjónarhornum

Meira um Wizz

Wizz?

Wizz hægindastólarnir eru hannaðir í Danmörku af fyrirtækinu Strictly Design. Vogue hefur selt Wizz og forvera hans Wizar núna í áraraðir og hafa viðskiptavinir okkar verið einstaklega ánægðir með stólana.

Þess vegna erum við óhrædd við að segja að Wizz sé hægindastóllinn sem Íslendingar elska. 

Notkun?

Fótskemlinum er einfaldlega lyft upp með því að taka í armana og þrýsta sér aftur í stólinn.

Bakinu má síðan halla að vild með því að toga í litla stöng sem er á innanverðum hægri arminum. 

Höfuðpúðinn er stilltur með einu laufléttu handtaki.

Áklæði?

Wizz tau-hægindastólarnir eru bólstraðir með áklæði frá Aquaclean, í þessu tilfelli áklæðinu Nordic. Áklæðið, sem er úr pólýesterblöndu, er einstaklega slitsterkt og samkvæmt framleiðanda er það eld- og vatnshelt. Það upplitast einnig seint í sól og því ætti stóllinn þinn að halda fegurð sinni um ókomna tíð.

Aquaclean Nordic áklæðið er afar þægilegt að þrífa með því einfaldlega að strjúka yfir stólinn með rökum klút. Hár loða illa við það og því eru Wizz stólarnir sérstaklega gæludýravænir.

Stærð

Breidd – 74cm
Dýpt – 50cm
Dýpt sætis – 50cm
Hæð – 114cm
Hæð upp í sæti – 52cm