VNR:
MOO-1069395
Moomin – Diskur 19cm Muskrat Beige
4.790kr.
Nýjustu meðlimir Moomin vörulínunnar nálgast lífið á ólíkan hátt. Hinn öra Snabba (Sniff) dreymir um frægð og frama en hinni spekingslegu Bísamrottu (Muskrat) þykir öll ólæti og ofgnótt tilgangslaus. Snabbi er kunnuglegt andlit í línunni en hér birtist alvörugefni heimspekingur Bísamrottan í fyrsta sinn, litla nagdýrið með yfirvaraskeggið.
„Hve tilgangslaust það er að æða um í kjaftagangi, byggja hús og elda mat og sanka að sér veraldlegum eigum.“ Engu að síður er enn sumt sem hreyfir við heimspekingnum því þegar Bísamrottan fellur til jarðar úr uppáhalds bólinu sínu, hengirúmi í garði við múmínhúsið, fylgir því auðmýkjandi sæmdarskellur.
Skálin þolir uppþvottavél, örbylgjuofn og ofn.
Báðar myndskreytingarnar af Snabba og Bísamrottu voru gerðar af Tove Slotte, sem settist í helgan stein árið 2022 eftir þrjátíu ár í starfi hjá Moomin Arabia. Myndskreytingarnar tvær eru þær síðustu í sígildu vörulínunni eftir þennan dáða hönnuð, en múmínaðdáendur munu fá að njóta myndskreytinga hennar í öðrum Moomin-vörulínum á komandi árum.
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.