Vörumerki | |
---|---|
Vörutegund |
Heilsudýnur |
VNR:
mayan-heilsurum
404.500kr. – 438.400kr. Original price was: 404.500kr. – 438.400kr..323.600kr. – 350.720kr.Current price is: 323.600kr. – 350.720kr..
Mayan Green er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Mayan Green er fimmsvæðaskipt latexdýna unnin úr 100% náttúrulatex og klædd dýnuveri úr 100% lífrænni bómull.
Einstaklega þægileg heilsudýna sem styður vel við bak og axlir og veitir framúrskarandi fjöðrun og þyngdardreifingu. Mayan Green heilsudýnan er afar sveigjanleg og hentar því ótrúlega vel í stillanleg rúm.
Ef þú ert að leita að náttúrulegu og vistvænu heilsurúmi þá er Mayan Green fyrir þig.
Mayan Green er einnig fáanleg sem einbreitt rúm sem má skoða hér.
Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.
Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland sem hefur framleitt íslensk heilsurúm í yfir 70 ár. Lystadún Snæland og Vogue leggja mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og því er allur latex sem notaður er í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.
Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu.
Einnig er hægt að hafa annan helminginn mjúkan og hinn millistífan.
Innofa Organic Cotton dýnuverið er gert úr 100% lífrænni bómull. Lífræn bómull er ræktuð og unnin án þess að nota nokkurskonar eiturefni eða litarefni, og er því betri fyrir umhverfið og heilsuna. Að auki hefur lífræn bómull mun lægra kolefnisspor.
Ólíkt flestum innfluttum dýnum er rennilás á dýnuverunum okkar. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.
Innofa Organic Cotton dýnuverið má þvo á 30° Celsius. Það má ekki strauja, setja í þurrkara, þurrhreinsa eða setja í klór til þess að koma í veg fyrir að það skreppi saman.
Mayan Green Multizone™ er heill 18 cm þykkur latexkjarni úr gríðarlega efnismiklum 100% Talalay náttúrulatex.
Mayan Green Multizone™ kjarninn er með 5 stífleikasvæði með 2 misstífum svefnflötum sem tryggja góða þyngdardreifingu og veita fullkominn stuðning við helstu álagspunkta líkamans, bak og axlir.
Steyptar loftrásir eru í kjarnanum sem veita einstaklega góða öndun og bæta loftflæði.
Mayan Green Multizone™ er úr 100% Talalay náttúrulatex.
Náttúrulatex er unnið úr 100% náttúrulegri gúmmítrjákvoðu. Þó að gúmmitrjákvoðan komi úr lífrænum trjám má ekki kalla náttúrulatex lífrænan vegna framleiðslutækninnar sem notuð er því hún krefst íblöndunar utanaðkomandi náttúrulegra efna sem síðan eru hreinsuð úr í lok framleiðsluferlisins.
Talalay er nafnið á framleiðsluaðferðinni sem notuð er til að fá mjúkan, léttan og endingargóðan latex sem þykir einmitt einstaklega góður í dýnugerð.
Náttúrulatex er mun mýkra og endingarbetra en latexblönda, og töluvert þyngra.
Talalay náttúrulatex er gæddur þeim náttúrulegu eiginleikum að veita afbragðs fjöðrun og dempun ásamt því að auðvelda allar svefnhreyfingar. Náttúrulatex hegðar sér mjög svipað og Memory Foam, það er að segja það lagar sig að öllum líkamanum og gefur eftir á mestu álagspunktunum. Ólíkt Memory Foam hinsvegar skilar náttúrulatex sér strax til baka þegar þú veltir þér á hliðina, og þar af leiðandi er alveg ótrúlega auðvelt að hreyfa sig í náttúrulatex dýnum.
Náttúrulatex er hráefni sem að heldur alveg afskaplega vel lögun sinni, og eru náttúrulatex dýnur því með mun lengri líftíma en flestar aðrar dýnur.
Svo skemmir nú ekki fyrir að náttúrulatex er örveirueyðandi (drepur rykmaura og myglusvepp) að eðlisfari og er ekki ofnæmisvaldandi.
Ertu með latex ofnæmi? Engar áhyggjur. Prótínin í latex sem þú ert með ofnæmi fyrir eru óvirkjuð í framleiðslunni, og því algerlega skaðlaus þegar dýnan skilar sér til þín. Ef þú vilt vera alveg viss þá getum við lánað þér bút af latexi sem þú getur tekið með þér heim til að vera viss um að latex dýnur henti þér.
Náttúrulatex er unnin úr safa gúmmítrésins Hevea Brasiliensins. Í tilfelli Mayan Green kemur þessi latexsafi úr trjám í FSC vottuðum skógi í Guatemala.
Mayan Green Multizone™ latex kjarninn er steyptur í mót sem hefur þau áhrif að kantarnir á dýnunni verða náttúrulega sterkbyggðir. Þetta gerir það að verkum að svefnflöturinn stækkar og að engin hætta er á að maður renni út á gólf þegar sest er á rúmkantinn.
Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.
Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja um ótal mismunandi liti og áklæði (t.d. leðurlíki, tau, velúr ofl.).
Lystadún-Snæland heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.
Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.
5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.
Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.
Allur latex sem Vogue notar í Lystadún-Snæland Hafdís og Mayan Green heilsudýnurnar sínar er fenginn frá stærsta og virtasta latexframleiðanda í Evrópu, Artilat. Latex frá Artilat er allur vottaður með Oeko-Tex Standard 100 og Rainforest Alliance umhverfisvottunum, og er meðlimur í Forest Stewardship Council (FSC-C135311) samtökunum.
Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.
Rammaðu inn nýja rúmið þitt með fallegum rúmgafli
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.
SÉRSMÍÐI Á DÝNU