GLÓDÍS 28 – Einbreitt heilsurúm (80 – 100cm)

201.000kr.340.900kr.

Glódís 28 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Glódís 26 er pokagormadýna með vönduðu fimm svæða gormakerfi og tveggja laga þægindalagi úr hágæða kaldsvampi.

Pokagormadýnur fjaðra og dempa vel, auðvelda hreyfingu á næturna og veita góða öndun.

Glódís 28 er einnig fáanleg sem tvíbreitt rúm sem má skoða hér.

Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.

Vörumerki

VNR: glodis-26-heilsurum-1

Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland sem hefur framleitt íslensk heilsurúm í yfir 70 ár. Lystadún-Snæland og Vogue leggja mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og því er allur svampur sem notaður er í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.

Glódís 23 eða 28 - Hver er munurinn?

Munurinn á Glódís 23 og Glódís 28 er þykktin á þægindalaginu.

Þægindalagið er efsta lagið á dýnunni sem gefur dýnunni þá yfirborðsmýkt sem þarf til að taka við lögun líkamans. Mannslíkaminn er eins misjafn og við erum mörg og því er ekki ein lausn sem hentar öllum.

Glódís 23 er með einfalt þægindalag úr 5cm þykkum svampi sem stýrir því hvort dýnan sé mjúk eða millistíf.

En hvað ef þér finnst millistífa dýnan aðeins of stíf undir axlirnar, eða mjúka dýnan ekki alveg nógu mjúk undir mjaðmirnar? Þá bætum við öðru 5cm þægindalagi af svampi ofan á Glódísi 20.

Glódís 28 er þar af leiðandi með tvö þægindalög úr 5cm svampi. Annarsvegar 5cm þægindalag sem gerir dýnuna annað hvort mjúka eða millistífa, og hinsvegar auka 5cm þægindalag sem fínstillir yfirborðsmýktina akkúrat eins og þú vilt hafa hana.

Einn annar kostur við það að velja dýnu með auka þægindalagi er sá að þá verður það aðal slitflöturinn á dýnunni. Þegar efsta lagið verður farið að mýkjast um of þá er einfalt mál að skipta því út fyrir nýtt þægindalag frá okkur. Þannig er búið að lengja líftíma dýnunnar þinnar til muna.

Stífleiki

Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu. 

Dýnuver

Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Ólíkt flestum innfluttum dýnum er rennilás á dýnuverunum okkar. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.

Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.

Stuðningur og þægindi

Glódís 26 samanstendur af 15cm pokagormakerfi og tveggja laga 10cm þægindalagi af hágæða kaldsvampi. Kaldsvampurinn í þægindalaginu er mismunandi eftir því hvort dýnan á að vera mjúk eða millistíf, og hvaða svampur er valinn í efsta lagið.

  • Mýkri útgáfan er samsett úr 15cm af ComfiSpring pokagormakerfi og 5cm af mjúkum Supersoft kaldsvampi.
  • ​Stífari útgáfan er samsett úr 15cm af ComfiSpring pokagormakerfi og 5cm af stífum Rigifoam kaldsvampi.

Hægt er að velja um þrjár tegundir af 5cm kaldsvampi í efsta lag dýnunnar. Hver svampur hefur sína eiginleika sem breyta yfirborðsmýktinni.

  • Supersoft (MD) - Millistífur og léttur kaldsvampur sem veitir góðan stuðning og léttir á álagi á baki og öxlum.
  • Celcius (CEL) - Millistífur og léttur þrýstijöfnunarsvampur (e. Memory Foam) sem hefur þann eiginleika að aðlaga sig vel að lögum líkamans og fylla uppí öll tómarúm sem geta myndast. Þannig léttir hann á álagspunktum líkamans, þá sérstaklega mjöðmum, baki og öxlum.
  • Waterlily (WL) - Mjúkur og efnismikill kaldsvampur sem veitir mikla yfirborðsmýkt og tekur vel á móti lögun líkamans. Göt í svampinum auka öndun og stuðla þannig að betri hitastýringu.

ComfiSpring pokagormakerfið er háþróað og fimmsvæðaskipt.

  • Fimmsvæðaskipt gormakerfi þýðir að gormarnir eru misstífir eftir því hvort þeir séu undir höfði, öxlum eða baki og mjöðmum. Dýnan er síðan spegluð út frá miðju til þess að geta haft endaskipti á henni án þess að glata þessum eiginleikum.
  • Hver einasti gormur er sérinnpakkaður í nylon poka og festur við næsta gorm með þriggja punkta festingu. Þetta kemur í veg fyrir að hreyfing flytjist á milli svefnsvæða.
  • Gormarnir eru svokallaðir tunnugormar og geta því lagst alveg flatir án þess að stoppa á sjálfum sér. 
Kantar

Kantarnir á Glódís dýnunum eru sérstaklega styrktir með stífum kaldsvampi. Þetta stækkar svefnflötin og gerir það að verkum að engin hætta er á að maður renni út á gólf þegar sest er á rúmkantinn.

Rúmbotn

Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.

Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja um ótal mismunandi liti og áklæði (t.d. leðurlíki, tau, velúr ofl.).

Afhendingartími

Lystadún-Snæland heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.

Framleiðsluland

Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.

Vottanir

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Finnur þú ekki þína stærð?

Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.

Rammaðu inn nýja rúmið þitt með fallegum rúmgafli