WIZZ – Hægindastóll (tau – grænn 128)

249.000kr.

Wizz – hægindastóllinn sem Íslendingar elska.

Fallegur, nettur en umfram allt þægilegur.

Til á lager

Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.

Vörumerki

VNR: VERI-WIZZ-N-128

Wizz?

Wizz hægindastólarnir eru hannaðir í Danmörku af fyrirtækinu Strictly Design. Vogue hefur selt Wizz og forvera hans Wizar núna í áraraðir og hafa viðskiptavinir okkar verið einstaklega ánægðir með stólana.

Því segjum við óhrædd að Wizz sé hægindastóllinn sem Íslendingar elska.

Notkun?

Fótskemlinum er einfaldlega lyft upp með því að taka í armana og þrýsta sér aftur í stólinn.
Bakinu má síðan halla að vild með því að toga í litla stöng sem er á innanverðum hægri arminum.
Höfuðpúðann má svo stilla með einu laufléttu handtaki.

Áklæði?

Wizz tau hægindastólarnir eru bólstraðir með áklæði frá Aquaclean. Áklæðið, sem er úr Pólýesterblöndu, er einstaklega slitsterkt og samkvæmt framleiðanda eld- og vatnshelt. Það litast einnig seint upp í sól og því ætti stóllinn þinn að halda fegurð sinni um ókomna tíð.

Aquaclean Nordic áklæðið er afar þægilegt að þrífa með því einfaldlega að strjúka yfir stólinn með rökum klút og hár loða illa við það. Því eru Wizz stólarnir sérstaklega gæludýravænir.