-20%
Vörumerki |
---|
VNR:
ROW-121205
234.900kr. Original price was: 234.900kr..187.920kr.Current price is: 187.920kr..
Tyler borðstofuborð frá sænska merkinu Rowico. Tímalaust sporöskjulaga borð úr gegnheilli, brúnolíuborinni FSC®-vottaðri eik í skandinavískri hönnun.
Ein stækkun (40 cm) fylgir með við kaup á borði og hægt er að kaupa aðra til viðbótar sem getur gert borðið allt að 250 cm langt.
Borðstofuborðið hefur verið meðhöndlað með Rubio Monocoat sem gefur endingargott yfirborð sem þolir slit á áhrifaríkan hátt. Þetta þýðir að borðið þarfnast ekki meðferðar fyrir notkun.
Stærð borðs eru 170×105 cm og hæðin er 74 cm.
Með einni stækkun er borðið 210×105 cm og með tveimur stækkunum 250×105 cm.
Rowico er sænskt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1971. Rowico leggur ríka áherslu á hönnun á hágæða húsgögnum sem skera sig úr en eru á sama tíma í takt við nýjustu strauma hverju sinni. Rowico er með gott auga fyrir smáatriðum og notar til að mynda mikið vistvænt timbur og burstað eða húðað stál í sín húsgögn sem gerir hvert húsgagn sérstakt. Framúrskarandi gæði í virkilega fallegum og nútímalegum húsgögnum frá Rowico sem grípa augað í hvaða rými sem þau prýða.
Rowico Home hugsar um náttúruna og nýtir auðlindir hennar á sem bestan hátt. Húsgögn sem eru FSC® vottuð þýðir að allt timbur kemur frá ábyrgri skógrækt sem virðir bæði fólk og umhverfi.
FSC stendur fyrir Forest Stewardship Council®, sem er óháð, alþjóðleg aðildarsamtök sem vinna að umhverfisvænni, samfélagslega ábyrgri og efnahagslega öflugri nýtingu á skógum heimsins með FSC vottunarkerfi sínu. Til að fyrirtæki geti kallað sig FSC® vottað þarf það að hafa 100% stjórn á aðfangakeðjum sínum og birgðum. Reglulegar úttektir eru gerðar af utanaðkomandi aðila.
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.
Til á lager