Vörumerki | |
---|---|
Vörutegund |
Heilsudýnur |
VNR:
layla-heilsudyna
79.800kr. – 168.300kr.
Royal Layla býður upp á einstaka mýkt án þess að fórna nauðsynlegum stuðningi sem tryggir þér fullkominn nætursvefn.
Royal Layla er vönduð millistíf heilsudýna með fimmsvæðaskiptu pokagormakerfi sem styður sérstaklega vel við mjóbakið og þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi sem léttir álagið á helstu álagssvæðum líkamans eins og mjöðmum og öxlum. Dýnan dreifir líkamsþunganum sérstaklega vel ásamt því að auðvelt er að hreyfa sig í dýnunni.
Stífleiki
Royal Layla er millistíf.
Dýnuver
Dýnuverið utan um Royal Layla er saumað úr sterku og teygjanlegu efni sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu. Þar að auki er þykkt lag af þrýstijöfnunarsvampi og kaldsvampi inni í dýnuverinu fyrir aukin þægindi.
Þægindalag
Royal Layla heilsudýnan er með sérstaklega þykkt þægindalag til þess að hafa yfirborðsmýktina sem allra besta. Þægindalagið byrjar í dýnuverinu sem er samsett úr 2cm þykkum þrýstijöfnunarsvampi, og svo 3,8cm mjúkum kaldsvampi. Næsta lag samanstendur svo af þremur lögum af kaldsvampi, samtals 5,5cm, hvert lag með sinn stífleika. Saman mynda þessi svamplög alveg ómótstæðilega yfirborðsmýkt sem ekki bara eykur þægindin heldur styður einnig einstaklega vel við líkamann og léttir álagið á öllum helstu álagssvæðum líkamans.
Stuðningur
Royal Layla heilsudýnan er með fimmsvæðaskipt pokagormakerfi. Samtals eru 840 gormar, hver um sig 22cm á lengd sem gefur dýnunni virkilega góða fjöðrun.
Hver gormur er sérinnpakkaður í nylon poka, sem eru svo límdir saman á þremur punktum. Þetta gerir gormakerfið mun sterkara, og gerir það að verkum að það lagar sig að líkamanum og tryggir að hreyfing milli svefnsvæða verður lítil sem engin.
Pokagormakerfið er fimm svæða skipt til að tryggja að líkaminn fái réttan stuðning og til að létta á helstu álagspunktum líkamans (axlir og bak).
Kantar
Kantarnir á Royal Layla eru sérstaklega gerðir til þess að stækka svefnflötinn og þessi auka styrking gerir það að verkum að engin hætta er á að maður renni út á gólf þegar sest er á rúmkantinn.
Afhendingartími
Royal Layla heilsudýnan er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00.
Framleiðsluland
Royal Layla er framleidd í Kína.
Ábyrgð
5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Royal dýnum.
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.