OOhh ‘WINDY TREES’ – Vindblásið keramík tré (26cm, White mat)

Original price was: 3.490kr..Current price is: 1.047kr..

Fallega handgert tré úr keramík frá náttúruvænu OOhh vörulínunni. Framleidd með notkun sólarorku með fallegri sandblásinni áferð og er 100% vatnshelt.

Verðið gildir fyrir eitt tré, sjá stærð þess í vöruheiti.

Virkilega vandað og stílhreint tré sem getur bæði prýtt heimilið á aðventunni eða jafnvel allan ársins hring. Fæst í 3 litum og 3 mismunandi stærðum sem hægt er að blanda saman að vild. Stilltu þeim upp í röð í sömu vindátt, eða leiktu þér að vild með náttúruöflin heima í stofu.

Þetta fallega vindblásna tré sem Danirnir fengu hugmyndina að úr náttúrunni er ekki ósvipað því sem við Íslendingar þekkjum hérlendis, þar sem tréin vagga sér í takt við vindáttirnar, stundum blíðlega og stundum harkalega beygja þau sig en brotna sjaldnast.

Til á lager

VNR: LUB-XWT26WH

OOhh vörulínan er klassísk dönsk hönnun þar sem sjálfbærni er mikilvæg við framleiðsluna. Vörurnar eru handunnar og úr endurnýtanlegum efnum.

Eru tréin ávallt bein? Nei það er sko alls ekki þanng í norðurhluta Danmerkur þar sem hönnunarteymi OOhh er staðsett, því þegar vel er að gáð þá sjást tréin alltaf halla sér til hliðar í flæði með vindinum. Það eru akkúrat þessi náttúrulögmál sem varð kveikjan að hönnuninni á vindblásnu trjánum frá OOhh vörulínunni.

Allar keramík vörur frá OOhh vörulínunni er brenndar með notkun sólarorku og endurnýttu vatni úr framleiðslunni. Þessi aðferð við framleiðsluna eru sterk skref í áttina að sjálfbærni í innanhúss skrautmunum.