VNR:
Ls-barnadyna-lagskipt-12cm
Barnadýna (Lagskipt – 12cm)
27.900kr. – 35.600kr.
Sérsmíðuð íslensk dýna í barnarúm. Úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue.
Þykkt: 12cm
Við bjóðum upp á allar helstu staðlaðar stærðir, en finnir þú ekki þína stærð hér fyrir neðan getur þú sent okkur línu á vogue@vogue.is og við smíðum dýnuna akkúrat í þeirri stærð sem þú vilt.
Þessi barnadýna er lagskipt 12cm þykk svampdýna sem er framleidd eftir pöntunum.
Lystadún-Snæland hefur framleitt vöggu og barnadýnur í yfir 70 ár og hafa alltaf lagt mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni. Því eru öll hráefni sem notuð eru í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.
Aldurshópur
12cm lagskiptu barnadýnurnar henta mjög vel í barnarúm fyrir börn á aldursbilinu 5 – 12 ára.
- Stífleiki
Barnadýnan er tveggja laga. Neðra lagið er úr millistífum 32kg kaldsvampi sem gefur góðan stuðning, og efra lagið er úr mjúkum 22kg kaldsvampi sem veitir góða yfirborðsmýkt.
Dýnuver
- Allar barnadýnurnar okkar koma klæddar í Innofa Frotte dýnuver. Innofa Frotte dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu.
- Innofa Frotte dýnuverið er með rennilás. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.
- Innofa Frotte dýnuverið má þvo á 40°C.
Afhendingartími
- 12cm lagskiptu barnadýnurnar eru framleiddar eftir pöntunum. Afhendingartími er um 7-10 virkir dagar að jafnaði
- Hægt er að senda okkur fyrirspurn á vogue@vogue.is ef óskað er eftir því að við sérsmíðum barnadýnu eftir máli.
Framleiðsluland
- Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.
Ábyrgð
- 5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún-Snæland dýnum.
Vottanir
- Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
- Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni.
Finnur þú ekki þína stærð?
Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.