Þú finnur jólagjöfina hjá okkur

Sendum um land allt

Rowico

Fast verð

Taransay sófaborð (Ø90cm - beige/brún eik)

Venjulegt verð 174.900 kr

Lúxus Taransay sófaborð með einstakri steinborðplötu úr travertíni frá Ítalíu og gegnheilum fótum úr hvítþveginni FSC vottaðri eik. Borðið er frá sænska merkinu Rowico.

Travertín er tegund af kalksteini með lifandi áferð sem gefur borðinu náttúrufegurð og með tímanum einstaka áferð – þar sem hægt er að uppgötva nýtt smáatriði í borðplötunni á hverjum degi. Mjúk, hringlaga hönnun skapar fallega andstæðu við líflega og sterka steinplötuna. Fáanlegt í nokkrum útfærslum.

Mundu að nota glasamottur og þurrkaðu strax upp leka til að varðveita útlit borðsins. Athugið að travertín er náttúrulegt steinefni sem þýðir að litafrávik og ójafnt yfirborð getur verið  ólík milli hluta. Litlar holur eru ekki gallar heldur einstakir eiginleikar hvers borðs.

Fæst einnig minna.

Þvermál: 90 cm
Hæð: 45 cm
Þykkt borðplötu: 1,8 cm

Rowico  |  Vörunúmer ROW-120845