
Um okkur
Vogue fyrir heimilið er byggt á gömlum og traustum grunni, enda á fyrirtækið ættir að rekja til fimm gamalgróinna fyrirtækja sem öll voru vel þekkt hvert á sínu sviði. Þessi fjölbreytti grunnur tryggir að mikil þekking og reynsla er saman komin hjá einvala starfsfólki Vogue fyrir heimilið.
Fyrirtækin sem um ræðir eru vefnaðarvöruverslunin Vogue hf. (stofnuð 1951), svamp- og dýnuframleiðendurnir Pétur Snæland hf. (1949) og Lystadún hf. (1956), efna- og áklæðaheildsalan S. Ármann Magnússon ehf. (1953) og Marco ehf. (1987), sem var brautryðjandi á Íslandi í innflutningi á amerískum rúmum og húsgögnum.
Sameining fyrirtækjanna hófst árið 1991 þegar Pétur Snæland og Lystadún sameinuðust. Síðan bættust Marco við árið 2001, Vogue árið 2002 og loks S. Ármann Magnússon árið 2010.
Verslun, heildsala og framleiðsla
Reksturinn skiptist í verslunarrekstur, heildverslun og framleiðslu. Meðal þess sem við framleiðum eru heilsudýnur af mörgum gerðum, rúmbotnar, höfðagaflar, raðsófar, svefnsófar, gluggatjöld af öllum gerðum og leikföng úr svampi. Auk þess sníðum við svamp fyrir húsgagnaframleiðendur og bólstrara og sérframleiðum dýnur fyrir skip og báta, sumarhús, hjólhýsi og fleira.
Í dag rekur Vogue fyrir heimilið tvær verslanir: í Síðumúla 30 í Reykjavík og á Glerártorgi á Akureyri.
Meðal viðskiptavina okkar eru sjúkrahús, heilsustofnanir, hótel og gistiheimili, útgerðir, skólar, leikskólar og húsgagnabólstrarar, auk almennra viðskiptavina.