Þú finnur jólagjöfina hjá okkur

Sendum um land allt

Kósýkvöld Vogue fyrir heimilið
miðvikudaginn 4. nóvember 18:00-21:00

Lystadún

Orri rugguhestur (lítill)

Venjulegt verð 34.900 kr

Hesturinn Orri, einstakur rugguhestur sem hefur glatt íslensk börn síðan um miðjan sjöunda áratuginn.

Yndisleg gjöf fyrir krakka! Hægt að velja um liti, áklæði og stærð, já Orri getur verið í hverri þeirri stærð sem þig langar í. Þú pantar og við framleiðum eftir þínum óskum! Orri litli er 62 cm á lengd, hæðin upp í sætið er 30 cm en hæsti punktur upp á haus er 47 cm.

Hér er Orri þó í staðlaðri stærð, en hann kemur í tveimur stöðluðum stærðum, lítill eða stór. Þegar staðlaður Orri er valinn kíkir þú til okkar og velur úr einu af fjölmörgu áklæðunum sem við bjóðum uppá.

Íslensk hönnun og íslensk framleiðsla.

Heiðurinn af hönnun Orra á Ágústa Snæland, fyrsti auglýsingateiknari á Íslandi.
Orri litli er 62 cm á lengd, hæðin upp í sætið er 30 cm en hæsti punktur upp á haus er 47 cm.

*Ath. þetta er framleiðsluvara hægt er að lesa um afhendingartíma hér. 

Lystadún  |  Vörunúmer 7309