Vörumerki |
---|
VNR:
VERI-WIZZ-N-128
249.000kr.
Wizz – hægindastóllinn sem Íslendingar elska.
Fallegur, nettur en umfram allt þægilegur.
Wizz hægindastólarnir eru hannaðir í Danmörku af fyrirtækinu Strictly Design. Vogue hefur selt Wizz og forvera hans Wizar núna í áraraðir og hafa viðskiptavinir okkar verið einstaklega ánægðir með stólana.
Því segjum við óhrædd að Wizz sé hægindastóllinn sem Íslendingar elska.
Fótskemlinum er einfaldlega lyft upp með því að taka í armana og þrýsta sér aftur í stólinn.
Bakinu má síðan halla að vild með því að toga í litla stöng sem er á innanverðum hægri arminum.
Höfuðpúðann má svo stilla með einu laufléttu handtaki.
Wizz tau hægindastólarnir eru bólstraðir með áklæði frá Aquaclean. Áklæðið, sem er úr Pólýesterblöndu, er einstaklega slitsterkt og samkvæmt framleiðanda eld- og vatnshelt. Það litast einnig seint upp í sól og því ætti stóllinn þinn að halda fegurð sinni um ókomna tíð.
Aquaclean Nordic áklæðið er afar þægilegt að þrífa með því einfaldlega að strjúka yfir stólinn með rökum klút og hár loða illa við það. Því eru Wizz stólarnir sérstaklega gæludýravænir.
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.