SÓLDÍS 26 – Einbreitt Heilsurúm (80 -140cm)

208.300kr.358.000kr.

Sóldís 26 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Sóldís er þriggja laga svampdýna unnin úr hágæða kaldsvampi og hentar mjög vel þeim sem þurfa aukin stuðning, eru viðkvæmir fyrir hreyfingu eða vilja stífa dýnu.

Sóldís heilsudýnurnar hafa verið mjög vinsælar fyrir þá sem þjást af verkjum í baki og herðum.

Sóldís 26 er einnig fáanleg sem tvíbreitt rúm sem má skoða hér.

Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.

Vörumerki

VNR: soldis26-heilsurum-1

Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland sem hefur framleitt íslensk heilsurúm í yfir 70 ár. Lystadún-Snæland og Vogue leggja mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og því er allur svampur sem notaður er í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.

Sóldís 20 eða 26 - Hver er munurinn?

Munurinn á Sóldís 20 og Sóldís 26 er þykktin á þægindalaginu.

Þægindalagið er efsta lagið á dýnunni sem gefur dýnunni þá yfirborðsmýkt sem þarf til að taka við lögun líkamans. Mannslíkaminn er eins misjafn og við erum mörg og því er ekki ein lausn sem hentar öllum.

Sóldís 20 er með einfalt þægindalag úr 5cm þykkum svampi sem stýrir því hvort dýnan sé mjúk eða millistíf.

En hvað ef þér finnst millistífa dýnan aðeins of stíf undir axlirnar, eða mjúka dýnan ekki alveg nógu mjúk undir mjaðmirnar? Þá bætum við öðru 5cm þægindalagi af svampi ofan á Sóldís 20.

Sóldís 26 er þar af leiðandi með tvö þægindalög úr 5cm svampi. Annarsvegar 5cm þægindalag sem gerir dýnuna annað hvort mjúka eða millistífa, og hinsvegar auka 5cm þægindalag sem fínstillir yfirborðsmýktina akkúrat eins og þú vilt hafa hana.

Einn annar kostur við það að velja dýnu með auka þægindalagi er sá að þá verður það aðal slitflöturinn á dýnunni. Þegar efsta lagið verður farið að mýkjast um of þá er einfalt mál að skipta því út fyrir nýtt þægindalag frá okkur. Þannig er búið að lengja líftíma dýnunnar þinnar til muna.

Stífleiki

Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu. 

Dýnuver

Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Ólíkt flestum innfluttum dýnum er rennilás á dýnuverunum okkar. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.

Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.

Stuðningur og þægindi

Sóldís 26 samanstendur af 15cm svampkjarna og tveggja laga 10cm þægindalagi úr hágæða kaldsvampi. Samsetningin er mismunandi eftir því hvort dýnan á að vera mjúk eða millistíf.

  • Mýkri útgáfan er samsett úr 15cm af millimjúkum LuxComfort kaldsvampi og 5cm af Supersoft kaldsvampi.
  • Mýkri útgáfan er samsett úr 15cm af stífum RigiFoam kaldsvampi og 5cm af Supersoft kaldsvampi.

Hægt er að velja um þrjár tegundir af 5cm kaldsvampi í efsta lag dýnunnar. Hver svampur hefur sína eiginleika sem breyta yfirborðsmýktinni.

  • Supersoft (MD) - Millistífur og léttur kaldsvampur sem veitir góðan stuðning og léttir á álagi á baki og öxlum.
  • Celcius (CEL) - Millistífur og léttur þrýstijöfnunarsvampur (e. Memory Foam) sem hefur þann eiginleika að aðlaga sig vel að lögum líkamans og fylla uppí öll tómarúm sem geta myndast. Þannig léttir hann á álagspunktum líkamans, þá sérstaklega mjöðmum, baki og öxlum.
  • Waterlily (WL) - Mjúkur og efnismikill kaldsvampur sem veitir mikla yfirborðsmýkt og tekur vel á móti lögun líkamans. Göt í svampinum auka öndun og stuðla þannig að betri hitastýringu.
Kantar

Kantarnir á Sóldís dýnunum eru stífir og góðir. Því er engin hætta á að maður renni út á gólf þegar maður sest á rúmkantinn.

Rúmbotn

Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.

Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja um ótal mismunandi liti og áklæði (t.d. leðurlíki, tau, velúr ofl.).

Afhendingartími

Lystadún-Snæland heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.

Framleiðsluland

Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.

Vottanir

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Finnur þú ekki þína stærð?

Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.

Rammaðu inn nýja rúmið þitt með fallegum rúmgafli