VNR:
ls-bakflaedispudar
Aftur í vörulista
Fóður (150cm - whipsable)
1.295kr. Original price was: 1.295kr..1.036kr.Current price is: 1.036kr..
Bakflæðispúði
19.960kr. – 27.900kr.
Sérsniðinn bakflæðispúði úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Þessi bakflæðispúði er fleigpúði úr svampi. Smíðaður úr burðarmiklum kaldsvampi, hannaður í samstarfi við lækna með þann tilgang að draga úr bakflæði í svefni og ná þannig betri nætursvefni. Má setja undir eða ofan á dýnuna eftir þörfum, Hækkunin byrjar um það bil hjá mjöðmum og nær upp fyrir höfuð.
Hækkun úr 1cm og uppí 13cm
Lengd: 100 cm (hækkunin fer úr 1cm þykkt og upp í 13cm)
Með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun
Fáanlegur í þremur breiddum, en hægt að fá aðrar breiddir sérsmíðaðar eftir óskum (sjá nánari lýsingu hér að neðan).
Þessi bakflæðispúði er fleigpúði úr svampi. Flestar stærðir eru til á lager, en hægt er að sérframleiða aðrar stærðir eftir óskum.
Lystadún-Snæland hefur framleitt allskyns stuðningspúða fyrir einstaklinga og heilbrigðisstofnanir í yfir 70 ár og höfum við alltaf lagt mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni. Því eru öll hráefni sem notuð eru í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.
Nánari lýsing
- Bakflæðispúðinn er smíðaður úr burðarmiklum kaldsvampi, og var hannaður í samstarfi við lækna í þeim tilgangi að draga úr bakflæði við nætursvefn.
- Púðann má setja undir eða ofan á dýnuna eftir þörfum hvers og eins.
- Púðinn er 100cm á lengd og hækkunin fer úr 1cm þykkt og upp í 13cm.
- Hækkunin byrjar um það bil hjá mjöðmum og nær upp fyrir höfuð.
Púðaver
- Allir bakflæðispúðarnir okkar koma klæddir í Innofa Frotte dýnuver. Innofa Frotte dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu.
- Innofa Frotte dýnuverið er með rennilás. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.
- Innofa Frotte dýnuverið má þvo á 40°C.
Afhendingartími
- Allar helstu stærðir af bakflæðispúðum sem hægt er að velja úr hér að ofan eru að jafnaði til á lager.
- Hægt er að sérsníða púða eftir máli, en þá getur afhendingartími verið um 7-10 virkir dagar að jafnaði
- Hægt er að senda okkur fyrirspurn á vogue@vogue.is ef óskað er eftir því að við sérsmíðum bakflæðispúða eftir máli.
Framleiðsluland
- Allir Lystadún-Snæland stuðningspúðar eru framleiddir af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.
Vottanir
- Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum, höfðagöflum og stuðningspúðum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar, höfðagaflar og stuðningspúðar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
- Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna, höfðagafla og stuðningspúða er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni.
Finnur þú ekki þína stærð?
Við sérsmíðum fjöldan allan af stuðningspúðum í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða nákvæmlega púðann sem þú þarfnast.