VNR:
COM-LP01
CORINNA - Einbreitt Heilsurúm (80 -140cm)
85.800kr. – 159.700kr. Original price was: 85.800kr. – 159.700kr..68.640kr. – 127.760kr.Current price is: 68.640kr. – 127.760kr..
ALEXA - Einbreitt Heilsurúm (140cm)
221.800kr. – 229.700kr. Original price was: 221.800kr. – 229.700kr..177.440kr. – 183.760kr.Current price is: 177.440kr. – 183.760kr..
Hnjápúði
7.900kr.
Contour hnjápúði úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue fyrir heimilið. Hannaður í samstarfi við sjúkraþjálfara með það markmið að auka stuðning við hné og mjaðmir en einnig til að ná fram betri slökun í mjóbaki. Hnjápúðinn hefur hjálpað mörgum, meðal annars þeim sem hafa spennu í mjóbaki en einnig fólki á meðgöngu eða þeim sem eru jafna sig eftir aðgerð.
Þykkt: 15cm (8cm í miðju)
Breidd: 26cm
Svampur: Celcius þrýstijöfnunarsvampur. Með Oeko-Tex Standard 100 laus við hættuleg eða skaðleg efni, unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
Þessi stuðningspúði er hnjápúði úr þrýstijöfnunarsvampi.
Lystadún-Snæland hefur framleitt allskyns stuðningspúða fyrir einstaklinga og heilbrigðisstofnanir í yfir 70 ár og höfum við alltaf lagt mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni. Því eru öll hráefni sem notuð eru í dýnurnar okkar með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.
Nánari lýsing
- Hnjápúðinn er smíðaður úr hágæða þrýstijöfnunarsvampi, og var hannaður í samstarfi við sjúkraþjálfara í þeim tilgangi að auka stuðning við hné og mjaðmir, en einnig til að ná fram betri slökun í mjóbaki. Púðinn er einstaklega góður fyrir til dæmis þá sem eiga erfitt með að leggja hnén saman í hliðarlegu. Hnjápúðinn hefur hjálpað mörgum sem eru meðal annars að jafna sig eftir aðgerð eða fólk á meðgöngu.
- Púðinn er 26cm á lengd. Endarnir á púðanum eru 15cm þykkir og miðjan er 8cm þykk.
Púðaver
- Allir hnjápúðarnir okkar koma klæddir í Innofa Frotte dýnuver. Innofa Frotte dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu.
- Innofa Frotte dýnuverið er með rennilás. Það þýðir að hægt er að klæða púðann úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu púðans þíns.
- Innofa Frotte dýnuverið má þvo á 40°C.
Afhendingartími
- Hnjápúðarnir okkar eru öllu jafna til á lager.
- Hægt er að sérsníða púða eftir máli, en þá getur afhendingartími verið 7-10 virkir dagar að jafnaði.
- Hægt er að senda okkur fyrirspurn á vogue@vogue.is ef óskað er eftir því að við sérsmíðum bakflæðispúða eftir máli.
Framleiðsluland
- Allir Lystadún-Snæland stuðningspúðar eru framleiddir af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.
Vottanir
- Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum, höfðagöflum og stuðningspúðum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar, höfðagaflar og stuðningspúðar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
- Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna, höfðagafla og stuðningspúða er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni.
Finnur þú ekki þína stærð?
Við sérsmíðum fjöldan allan af stuðningspúðum í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða nákvæmlega púðann sem þú þarfnast.