Vörumerki |
---|
VNR:
BIT-14927
2.495kr.
Græn 12 cm skál úr Kusintha línunnni frá danska hönnuðinum Christian Bitz.
Kusintha línan er hluti af góðgerðarstarfsemi sem hönnuðirnir Christian Bitz og Lisette Rützou stofnuðu árið 2018. Með hverri keyptri Kusintha vöru styður þú við börn í neyð í Malaví.
Vörur í Kusintha línunni eru bæði unnar úr hefðbundnu gleri, en sumar eru einnig unnar úr endurunnu gleri. Vörurnar eru allar í fallegum litum sem passa fullkomnlega við hinn ætíð vinsæla borðbúnað frá Bitz.
Kusintha línan er ekki ætluð í stóreldhús eða á veitingastaði og þolir að jafnaði 200 þvotta í uppþvottavél áður en hætta er á að liturinn dofni. Ráðlagt er því að handþvo þetta ótrúlega fallega stell svo það haldi sínum glæsilega lit sem allra lengst.
Bitz borðbúnaðurinn er hannaður af hinum danska eðalsjarmör Christian Bitz. Christian Bitz er næringarfræðingur, þáttastjórnandi, metsölubókahöfundur og fyrirlesari og byggir hugmyndafræði hans á því að fólk njóti þess að borða góðan og heilsusamlegan mat, án allra öfga, skyndilausna eða samviskubits. Vörurnar eru því hannaðar með það í huga að þær geri fólki auðveldara að stjórna skammtastærðunum og njóta matarins.
Ekki með notendanafn?
Búa til aðgangÞú gætir unnið gjafabréf
Við drögum reglulega út gjafabréf þar sem heppinn póstlistavinur fær 15.000kr gjafabréf í Vogue fyrir heimilið. Við gefum póstlistavinum okkar fregnir af nýjungum en einnig sérstök tilboð og foraðgang að ýmsum tilboðum.
Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að smella á hlekk neðst í öllum okkar póstum. Þú finnur persónuverndarstefnu Vogue fyrir heimilið á vogue.is/personuvernd/ Þegar þú hefur smellt á skráningarhnappinn hér fyrir ofan gefur þú samþykki fyrir því að við megum nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.