Notendaskilmálar
Skilmálar varðandi viðskipti í verslunum og vefverslun Vogue fyrir heimilið.
Svona verslar þú á vefnum
- Veldu vöru og settu hana í körfu.
- Veldu „Ganga frá pöntun“ og fylltu út nauðsynlegar upplýsingar.
- Veldu sendingar- og greiðslumáta.
- Gakktu frá greiðslu.
Þegar greiðsla hefur borist færð þú kvittun í tölvupósti. Þá er kominn á rafrænn kaupsamningur milli vefverslunar Vogue og kaupanda.
Seljandi
Vogue ehf.
Kennitala: 411091-2019
VSK-númer: 31078
Síðumúli 30, 108 Reykjavík
vogue@vogue.is · 533-3500 (Reykjavík)
akureyri@vogue.is · 462-3504 (Akureyri)
1. Skila- og skiptiréttur
Reglur um skil og skipti, þar á meðal 30 daga skiptirétt á heilsudýnum, eru á sérstakri síðu: Skila- og skiptiréttur.
Lög um neytendasamninga · Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu
2. Ábyrgðarskilmálar
Almenn íslensk neytendaábyrgð gildir um flestar vörur sem keyptar eru hjá Vogue fyrir heimilið. Hún er 2 ár frá kaupdegi.
Fyrir vörur með lengri ábyrgð gildir full ábyrgð í 2 ár frá kaupdegi. Eftir það tekur við hlutfallsleg ábyrgð sem lækkar í þrepum:
100%
0–2 ár
60%
eftir 2 ár
40%
eftir 3 ár
30%
á 4. ári
Hlutfallið miðast við upprunalegt kaupverð. Ábyrgðin fellur niður þegar varan nær fimm ára aldri og miðast við dagsetningu á reikningi.
- Kvittun fyrir kaupunum gildir sem ábyrgðarskírteini vörunnar.
- Sumar vörur, til dæmis framleiðsluvörur, eru með lengri ábyrgðartíma. Það er þá sérstaklega tekið fram.
- Vörur sem seldar eru til fyrirtækja eða í atvinnustarfsemi eru með 1 árs ábyrgð.
- Kvartanir vegna galla skulu berast um leið og gallans verður vart, á vogue@vogue.is eða í síma 533-3500.
Á dýnum þarf alltaf að nota dýnuhlíf til að viðhalda ábyrgðinni. Blettir, óhreinindi, vökvainnstreymi eða önnur merki um misnotkun geta ógilt ábyrgðina og gert dýnuna óhæfa til viðgerðar eða endurnýjunar. Af hreinlætisástæðum er ekki tekið á móti óhreinum dýnum til skoðunar eða viðgerðar.
Ítarlegir ábyrgðarskilmálar
Varan sem þú hefur keypt hjá Vogue ehf. nýtur ábyrgðar samkvæmt kaupalögum nr. 50/2000. Þjónustudeildir okkar halda utan um viðhald og ábyrgðarviðgerðir á öllum vörum sem fyrirtækið selur. Fylgdu uppgefnum leiðbeiningum um rétta notkun og meðferð, því góð meðferð tryggir lengri endingu og áreiðanlegri virkni.
Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini fyrir upprunalegan kaupanda og þarf að framvísa honum ef varan kemur til ábyrgðar, sem sönnun um ábyrgðartíma og að handhafi sé upprunalegur kaupandi. Glataður reikningur leiðir til glataðrar ábyrgðar. Ábyrgð glatast einnig ef áföst ábyrgðarskírteini eða verksmiðju-, rað- og tegundanúmer hafa verið skemmd eða fjarlægð af vörunni. Ábyrgðin nær til framleiðslu- og efnisgalla sem fram koma á ábyrgðartímanum, en ekki til eðlilegs slits eða rekstrarvöru.
Það er á ábyrgð og kostnað kaupanda að koma vörunni til skoðunar eða viðgerðar hjá þjónustudeild Vogue ehf. Undantekningar geta verið gerðar ef um nýja og fyrirferðarmikla muni er að ræða. Fari viðgerð á ábyrgðartíma fram utan þjónustudeildar, þ.e. viðgerðarmaður fer á staðinn, greiðir kaupandi ferðatíma, ferðakostnað og uppihald samkvæmt gildandi töxtum Vogue ehf.
Vörur sem sendar eru með þriðja aðila teljast afhentar þegar þær eru afhentar flutningsaðila og eru þá á ábyrgð kaupanda. Það er á ábyrgð kaupanda að tryggja vöru sem send er með þriðja aðila.
Söluveð
Seljandi á söluveð í öllum seldum munum til tryggingar kaupverði, ásamt vöxtum og kostnaði, samkvæmt 35. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð. Standi kaupandi ekki í skilum er seljanda heimilt að láta selja hið veðsetta nauðungarsölu eða rifta söluveðsetningunni og krefjast afhendingar. Söluveð fellur ekki niður fyrr en við fullnaðargreiðslu, og sama á við um vörur sem greiddar eru með raðgreiðslusamningum. Óheimilt er að selja hið veðsetta, breyta því eða skeyta við aðra hluti þannig að hætta sé á að söluveð glatist.
3. Afhendingarmátar
Vogue fyrir heimilið býður upp á mismunandi afhendingarmáta eftir því hvort pöntun er sótt eða send, og þeir geta verið mismunandi eftir póstnúmeri.
- Pantanir sem sóttar eru í verslun eru geymdar í að hámarki 90 daga frá kaupdegi. Þetta á ekki við um sérpantanir.
- Vogue kaupir sendingarþjónustu af þriðja aðila og ber ekki ábyrgð á töfum sem verða eftir að pöntun hefur verið afhent sendingaraðila.
- Afhendingartími getur verið breytilegur eftir sendingarmáta og orðið lengri á álagstímum.
Nánar um afhendingarmáta á síðunni Sendingarleiðir.
4. Afhendingartími
Í verslun
Smávörur, húsgögn og stærri vörur sem eru til á lager eru afgreiddar samdægurs. Stærri vörur eru aðeins afgreiddar á afgreiðslutíma lagers.
Úr vefverslun
Vörur á lager sem sóttar eru í verslun eru almennt afgreiddar næsta virka dag. Afgreiðslutími getur verið annar ef óskað er eftir sendingu.
Framleiðsluvörur
Dýnur, rúm, rúmgaflar, svefnsófar, stuðningspúðar og dýnuver sem ekki eru til á lager: að jafnaði 10–20 virkir dagar. Vöggudýnur og stuðningspúðar eru alla jafna til á lager.
Afhendingartími á gluggatjöldum, gardínum og gardínubrautum fer eftir tegund, umfangi pöntunar og álagi. Hafðu samband við sölufulltrúa til að fá nákvæmari tíma. Á tilboðsdögum á borð við Singles Day, Black Friday og Cyber Monday getur afhendingartími lengst vegna álags.
5. Gluggatjöld – máltaka og uppsetning
Við bjóðum upp á máltöku og ráðgjöf gegn sanngjörnu verði.
Máltaka
- Vogue ber aðeins fulla ábyrgð á útseldri máltöku.
- Útvegi kaupandi sjálfur mál ber hann fulla ábyrgð á þeim.
Uppsetning
- Kaupandi ber ábyrgð á að kanna hvort lagnir eða annað sé í vegi eða innan veggja þar sem setja á upp.
- Kaupandi ber ábyrgð á að hægt sé að festa vöruna á þann stað sem óskað er án þess að lagnir eða annað skemmist.
- Verði lagnir eða annað fyrir skemmdum við uppsetningu ber kaupandi fulla ábyrgð.
6. Vöruverð í vefverslun
Vöruverð í vefverslun er að jafnaði það sama og í verslunum okkar. Vöruúrval, afslættir og tilboð geta þó verið mismunandi.
- Verð eru gefin upp með virðisaukaskatti en án sendingarkostnaðar.
- Verð geta breyst án fyrirvara og eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Sama gildir um birgðastöðu, myndir og vörulýsingar.
- Ef vara klárast eftir að pöntun er gerð, eða birgðastaða er röng, hefur starfsfólk samband símleiðis eða í tölvupósti og aðstoðar við val á annarri vöru eða endurgreiðir vöruna að fullu.
- Allur sendingarkostnaður kemur fram í greiðsluferlinu. Enginn aukakostnaður bætist við eftir það, nema kaupandi óski eftir breyttum sendingarskilmálum sem fela í sér aukinn kostnað.
Afsláttarkóðar og tilboð
- Afsláttarkóðar gilda í afmarkaðan tíma og geta verið bundnir skilyrðum, til dæmis ákveðnum vörum, vöruflokkum, vörumerkjum eða lágmarksupphæð.
- Kóðar gilda fyrir vörur sem tilgreindar eru í viðkomandi auglýsingu, en ekki fyrir smávörur í vefnaðarvöru eða vörur frá As We Grow, Lopi Draumur, Fatboy, Georg Jensen, Kyrrland, Ihanna Home og Tulipop.
- Kóðar gilda aðeins í vefverslun nema annað sé tekið fram. Aðeins er hægt að nota einn kóða í einu.
- Kóðar gilda ekki fyrir útsölu- eða tilboðsvörur.
- Tilboð og afsláttardagar gilda ekki um vörur merktar „Fast verð“: íslensk gluggatjaldaframleiðsla, verkfæri og smávörur í vefnaðarvörudeild, gjafabréf og vörur frá Kyrrland, As We Grow, Lopi Draumur, Georg Jensen, Tulipop og Ihanna Home.
7. Greiðslumátar í vefverslun
Eftirfarandi greiðslumátar eru í boði í vefverslun Vogue fyrir heimilið:
- Kredit- og debetkort (Visa, Mastercard, American Express og Diners) í gegnum örugga greiðslugátt Straums. Greiðsla er skuldfærð strax af kortinu.
- Netgíró: greiðsla fer fram hjá Netgíró og samkvæmt skilmálum þeirra. Hægt er að nýta sér raðgreiðslur. Nánari upplýsingar á netgiro.is.
Í verslunum okkar eru fleiri greiðslumátar í boði, til dæmis Síminn Pay, Pei og Aur.
8. Persónuvernd og vafrakökur
Upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga og vafrakökur eru í persónuverndarstefnu okkar.
9. Ágreiningur
Við reynum að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það tekst ekki er hægt að bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Lokaúrræði er að fara með málið fyrir dómstóla, og skal það gert í íslenskri lögsögu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt lögum nr. 91/1991.
Ekki hika við að hafa samband
Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er, með tölvupósti eða á Facebook og Instagram.
Reykjavík: vogue@vogue.is · 533-3500
Akureyri: akureyri@vogue.is · 462-3504
Síðast uppfært: 13. október 2026