Þú finnur jólagjöfina hjá okkur

Sendum um land allt

Kósýkvöld Vogue fyrir heimilið
miðvikudaginn 4. nóvember 18:00-21:00

Gardínur í borðstofu

Gluggatjöld og gardínur

Við hjá Vogue búum yfir áratugalangri reynslu af sölu, framleiðslu og uppsetningu gluggatjalda fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum.

Hvort sem þig vantar gardínur til að fullkomna stofuna, myrkvun í svefnherbergið eða strimla fyrir alla skrifstofuna, þá eigum við lausnina. Hafðu samband og ráðgjafar okkar aðstoða þig við að velja réttu gluggatjöldin fyrir rýmið.

Rúllugardínur

Rúllugardínur

Venjulegar, myrkvun eða screen

Við framleiðum rúllugardínur sérsniðnar að þínum þörfum, úr langflestum efnum sem hægt er að nota í rúllugardínur. Úrvalið af litum og þéttleika er fjölbreytt og ef efnið er ekki til á lager getum við sérpantað það.

Þú getur komið með eigin mál eða fengið mælingamann til þín gegn vægu gjaldi.

Plíseraðar gardínur

Plíseraðar gardínur

Stílhrein, orkusparandi og barnvæn

Sum rými kalla á sérhæfða lausn: húsgögn fyrir glugganum, gluggi út að gangstíg eða óvenjuleg lögun eins og trapísa eða þríhyrningur. Plíseraðar gardínur má draga bæði niður og upp, svo þú stýrir birtunni án þess að fórna næðinu.

„Honeycomb“-hönnunin einangrar og hjálpar til við orkusparnað, og þar sem ekkert band er á þeim henta þær vel í barnaherbergi. Við eigum mikið úrval efna á lager og sérpöntum einnig frá Louvolite.

Skoða efni frá Louvolite →

Strimlagluggatjöld

Strimlagluggatjöld

Fjölhæf lausn fyrir stóra glugga

Strimlagluggatjöld eru einstaklega góð lausn í gólfsíða og hallandi glugga. Þau henta jafnt skrifstofum, stofnunum og heimilum með stórum gluggum og fallegu útsýni.

Strimlana má stilla nákvæmlega til að hleypa inn birtu, draga úr glampa á skjám eða fá fullkomið næði.

Day and Night gluggatjöld

Day & Night

Fullkomin stjórn á birtunni

Day & Night gluggatjöld, einnig þekkt sem Vision- eða Zebra-gluggatjöld, gefa rýminu fallegt og nútímalegt yfirbragð. Þau virka eins og rúllugardínur en eru tveggja laga, annað lagið gegnsætt og hitt myrkvandi.

Þannig stillir þú birtuna á einfaldan hátt nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

Skoða bækling →

Gardínur á brautum

Gardínur og brautir

Hlýleiki og huggulegheit

Fátt fullkomnar rýmið eins og fallegar gardínur. Hvort sem þær hanga á stöng eða brautum eru þær punkturinn yfir i-ið.

Við eigum gífurlegt úrval af gardínuefnum, hvort sem þú vilt sauma sjálf(ur) eða fá gardínurnar sérsaumaðar eftir máli af fagfólki með áratuga reynslu. Við sérsmíðum líka ál- og Z-brautir í öll rými eftir málum.

Panta mælingu →

Ertu fyrir norðan?

Viltu fá tilboð í gluggatjöld beint frá versluninni okkar á Akureyri?

Leyfðu okkur að aðstoða