Skila- og skiptiréttur
7 dagar
Keypt í verslun
Skilaréttur á ógallaðri vöru frá afhendingu.
14 dagar
Keypt í vefverslun
Frestur til að falla frá kaupum, án þess að tilgreina ástæðu.
30 dagar
Heilsudýnur
Skipti- og skilaréttur á dýnum í stöðluðum stærðum.
Vörur keyptar í verslunum okkar
- Þú mátt skila ógallaðri vöru innan 7 daga frá afhendingu.
- Varan þarf að vera í upprunalegum umbúðum, óopnuð, ónotuð og óskemmd.
- Varan er endurgreidd á sama hátt og greitt var fyrir hana, gegn framvísun kassakvittunar.
- Sé varan merkt með gjafamiða þarf ekki kassakvittun. Endurgreitt er þá með inneignarnótu.
- Sérsniðnum vörum er ekki hægt að skila, sjá nánar hér fyrir neðan.
Vörur keyptar í vefverslun
Þegar verslað er í vefverslun, eða annars staðar utan verslana okkar, hefur þú 14 daga frest til að falla frá kaupum. Þú þarft ekki að tilgreina ástæðu.
Til að nýta réttinn þarftu að láta okkur vita af ákvörðun þinni:
- með tölvupósti á vogue@vogue.is
- bréfleiðis til Vogue ehf., Síðumúla 30, 108 Reykjavík
- í gegnum netspjall okkar á Facebook eða Instagram
Tilkynningin þarf að berast skriflega, því það er á ábyrgð kaupanda að sýna fram á að hún hafi borist okkur. Ekki er hægt að falla frá kaupum með því að neita að taka við sendingu.
Endurgreiðsla og endursending
- Aðeins er endurgreitt fyrir þær vörur sem er skilað. Sendingarkostnaður er aðeins endurgreiddur ef allri pöntuninni er skilað.
- Endurgreitt er á sama hátt og greitt var.
- Ef greitt var með lántöku í gegnum Síminn Pay, Pei, Netgíró eða Aur er krafan felld niður hjá viðkomandi félagi.
- Kaupandi greiðir kostnað við að senda vöru til baka og ber ábyrgð á að hún skili sér til okkar. Þetta á ekki við ef um er að ræða ranga, skemmda eða gallaða vöru.
- Kaupandi ber ábyrgð á verðrýrnun sem stafar af annarri meðferð en þarf til að kanna eiginleika, einkenni og virkni vörunnar. Að öðru leyti þarf varan að vera í upprunalegum umbúðum, óopnuð, ónotuð og óskemmd.
Vörur sem ekki er hægt að skila
Sérsniðið og íslensk framleiðsla
- Skorin metravara
- Gluggatjöld sniðin eftir málum
- Íslenskar framleiðsluvörur (sérreglur gilda um heilsudýnur)
- Sérpöntuð eða sérsmíðuð húsgögn. Ef hætt er við pöntun heldur Vogue 50% staðfestingargjaldi.
- Vörur framleiddar utan staðlaðra stærða, t.d. dýnur í hjólhýsi og tjaldvagna, sérskorinn svampur, rúmbotnar í óvenjulegum málum og sérsaumuð gluggatjöld
Af hreinlætisástæðum
Ef innsigli hefur verið rofið eftir afhendingu:
- Handklæði, þvottapokar og baðmottur
- Servíettur, viskastykki, borðtuskur og klútar
- Hreinlætisvörur, t.d. salernisburstar
- Sængurver, koddaver, lök, hlífðarlök og dýnuhlífar
- Sængur og koddar
- Fatnaður, sokkar og baðsloppar
- Dýnur og yfirdýnur utan 30 daga skiptiréttarins
Staðlaðar stærðir Vogue fyrir heimilið
Heilsudýnur (breidd × lengd, cm)
80×200 · 80×210 · 90×200 · 90×210 · 100×200 · 120×200 · 140×200 · 153×203 (Queen) · 160×200 · 180×200 · 180×210 · 183×213 (Cal-King) · 193×203 (King) · 200×200
Rúmbotnar (breidd × lengd, cm)
Sömu stærðir og heilsudýnur, auk 91,5×213 (Half Cal-King) og 96,5×203 (Half King)
Rúmgaflar (breidd × hæð, cm)
80 · 90 · 100 · 120 · 140 · 153 · 160 · 180 · 183 · 193 · 200 · 220 · 240 × 122
Barnadýnur (breidd × lengd × hæð, cm)
45×80×6 (ferköntuð og sporöskjulaga vöggudýna) · 55×115×8 · 60×120×8 · 70×140×8 · 70×170×8
Lagskiptar 7+5 cm: 70×140×12 · 70×170×12 · 80×140×12 · 80×170×12 · 90×140×12 · 90×170×12
Heilsudýnur – 30 daga skipti- og skilaréttur
Um heilsudýnur keyptar hjá okkur gilda sérstakar reglur.
- 30 daga skipti- og skilaréttur er á dýnum í stöðluðum stærðum, með því skilyrði að keypt sé hlífðarlak eða dýnuhlíf hjá okkur.
- Hægt er að skipta dýnu fyrir aðra innan 30 daga frá afhendingu. Sé nýja dýnan dýrari greiðir kaupandi mismuninn, sé hún ódýrari endurgreiðum við mismuninn.
- Við skil á dýnu er andvirðið endurgreitt að frádregnu 15% skilagjaldi.
- Dýnan þarf að vera óskemmd, í upprunalegum pakkningum og kvittun þarf að fylgja.
- Flutningur er alltaf á kostnað kaupanda.
- Sérframleiddum dýnum í óstöðluðum stærðum er hvorki hægt að skila né skipta.
Til að hægt sé að skila eða skipta dýnu þarf alltaf að nota dýnuhlíf. Blettir, óhreinindi, vökvaskemmdir eða önnur merki um misnotkun geta ógilt ábyrgðina. Af hreinlætisástæðum tökum við ekki við óhreinum dýnum til skoðunar eða viðgerðar.
Spurningar?
Hafðu samband og við aðstoðum þig.
Reykjavík: vogue@vogue.is · 533-3500
Akureyri: akureyri@vogue.is · 462-3504
Síðast uppfært: 13. október 2026