
Sérlausnir
Í Síðumúla 30 er ekki aðeins glæsileg verslun heldur líka fullbúið svamp- og trésmíðaverkstæði og saumastofa. Þar starfar fjöldi fólks með áratuga reynslu af saumaskap, svampskurði og trésmíði.
Fyrst og fremst framleiðum við dýnur, rúmbotna og gardínur, en við sérframleiðum líka dýnur í skip, stuðningspúða af öllum stærðum og gerðum, leikskóladýnur og leikmottur, svamp fyrir bólstrara og ótal margt fleira.

Svampur
Einstakur efniviður
Vogue og Lystadún Snæland hafa framleitt svampvörur í yfir 70 ár. Á stóru svampskurðarverkstæði okkar í Síðumúla framleiðum við heilsudýnur og skerum svamp eftir máli fyrir viðskiptavini.
Við bjóðum margar tegundir af svampi, hver með sína eiginleika, og ráðgjafar okkar hjálpa þér að velja rétta svampinn og útfæra hugmyndina.

Heilsudýnur
Íslensk framleiðsla í efsta gæðaflokki
Svampdýnur, latexdýnur og pokagormadýnur í öllum stærðum og gerðum. Í rúm 70 ár höfum við framleitt heilsudýnur í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara og heilbrigðisstarfsfólk.
Við þróuðum skipadýnuna Sædís sem tryggir sjómönnum góða hvíld í ólgusjó, sjúkradýnur sem finna má á flestum sjúkrahúsum landsins, barna- og vöggudýnur, og dýnur fyrir sumarhús, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla.

Rúmbotnar og rúmgaflar
Til að fullkomna svefnherbergið
Á trésmíðaverkstæðinu og saumastofunni framleiðum við vandaða, bólstraða rúmbotna og rúmgafla úr fyrsta flokks hráefnum. Veldu úr tugum lita og áklæða, mismunandi rúmfótum og mörgum útfærslum af höfðagöflum.
Finnurðu ekki þína stærð, eða vantar gafl sem passar undir súð? Hafðu samband og við hjálpum þér.

Stuðningspúðar og sessur
Til að fari vel um þig
Stuðningspúðar eru stór hluti af framleiðslunni okkar. Marga þeirra höfum við þróað í samstarfi við sjúkraþjálfara, lækna og Sjúkratryggingar Íslands, og auk þess smíðað ótal púða eftir hugmyndum viðskiptavina.
Bakflæðispúðar, hnjápúðar, sessur, púðar á bekki og sjúkrarúllur eru aðeins örfá dæmi.

Barna- og leikskólavörur
Allt sem má hnoðast í og á
Í gegnum árin höfum við smíðað ótrúlega margt skemmtilegt úr svampi fyrir barnaherbergi og leikskóla um allt land: rugguhesta, stóla, sófa, leikmottur, leikdýnur og leikkubba. Hesturinn Orri og Nenni-stóllinn eru meðal vinsælustu varanna okkar.
Þarf að endurnýja leikdýnurnar á leikskólanum? Hafðu samband og við búum til eitthvað skemmtilegt saman.